Enn mælast háar frjótölur á höfuðborgarsvæðinu

Það hvessti á þriðjudag og hitastig nálgaðist 20°C loftið var tiltölulega þurrt og þá er ekki að sökum að spyrja frjótala grasa rauk upp og þann sólarhring (14.8.) reyndust 97 grasfrjó fara um hvern rúmmetra lofts við Bústaðaveginn. Í Urriðaholti var frjótalan heldur lægri en samt há á mælikvarða jaðarbyggðarinnar eða 62 frjó/m3. Í ágúst má alltaf reikna með svona toppum syðra en þeir standa venjulega aðeins í fáa daga. Topparnir eru fylgifiskar hlýinda og þurra vinda. Sumarið 2011 urðu þeir fjórir og einn kom í byrjun septemeber. Fólk með grasofnæmi finnur fyrir þessu jafnvel þó frjótölur verði sjaldan mjög háar svona síðsumars.


Nýútsprungið gras (líklega húsapuntur) við Glæsibæ (16.8.). ©MH

Gras er enn að blómstra. Myndin er tekin af túnbleðli í Laugardal í Reykjavík sem slapp undan slætti þetta sumarið og hefur þess vegna orðið drjúg uppspretta frjókorna og er enn (16.8.) því nú blómstra þar bæði vallarfoxgras og hálíngresi og dreifa frjókornum. ©MH

Sjá nánar um frjófréttir