Endalok tertíertímabilsins á Hrafnaþingi

Á 32. alheimsþingi jarðfræðinga í Flórens árið 2004 ákvað alþjóðlega jarðlagafræðinefndin (ICS, International Commission on Stratigraphy) að afskrifa tímabilin tertíer (1,8–65,5 m.á.) og kvarter (0–1,8 m.á.) í jarðfræðilega tímatalinu og að í þeirra stað skyldi nota tímabilin paleógen (23–65,5 m.á.) og neógen (0–23 m.á.). Þessi ákvörðun varð vægast sagt mjög umdeild meðal kvarterjarðfræðinga (ísaldarjarðfræðinga). Alþjóða kvarterjarðfræðisambandið (50.000 meðlimir) krafðist þess að kvartertímabilið yrði tekið gilt að nýju og næði frá því fyrir 2,6 m.á. til dagsins í dag. Árið 2009 samþykkti ICS þessa kröfu og nú er nýlífsöld skipt í tímabilin paleógen (23–-65,5 m.á.), neógen (2,588–23 m.á.) og kvarter (0–2,588 m.á.). Samfara þessu hafa ýmsar nýjar skilgreiningar á mörkum tímabila verið samþykktar.

Í erindinu verður fjallað um uppruna og sögu jarðfræðilegs tímatals. Núgildandi tímatal verður skoðað og farið yfir sögu jarðar og þróun lífs í stórum dráttum. Þá verður litið á áhrif þessara breytinga á íslenska jarðsögu og framsetningu jarðfræðikorta af Íslandi.

Erindið verður flutt í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ, í Krummasölum á 3. hæð kl. 15:15–16:00. 

Hrafnaþing er opið öllum. Verið velkomin!

Dagskrá Hrafnaþings veturinn 2011–2012

Þeir sem ekki sjá sér fært um að mæta á Hrafnaþing eiga þess kost að hlusta á erindin á rás Náttúrufræðistofnunar á samfélagsmiðlinum Youtube.