Verndun jarðminja á Hrafnaþingi


Móberg í Sveifluhálsi. Ljósm. Sigmundur Einarsson

Í erindinu verður farið yfir stöðu jarðminja í náttúruvernd á Íslandi og jafnframt rakin hnignun jarðminja í landinu frá landnámsöld til okkar tíma. Fjallað verður um verndun jarðminja á Íslandi og kynntar hugmyndir um flokkunaraðferð sem hentar íslenskum aðstæðum og ætlað er að einfalda mönnum yfirsýn. Jafnframt verður skoðað hvernig farið er með mikilvægar jarðminjar í samfélagi nútímans, reynt að skoða orsakirnar og hvað er til ráða.  

Erindið verður flutt í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ, 3. hæð kl. 15:15-16:00. Sjá kort.

Hrafnaþing er opið öllum. Verið velkomin!