Rannsóknir á hvítabirnunni eru í umsjón Karl Skírnissonar dýrafræðings á Tilraunastöðinni á Keldum og eru þær gerðar í samvinnu við Ólöfu Guðrúnu Sigurðardóttur, dýralækni og dýrameinafræðing á Keldum, og Þorvald Björnsson hamskera á Náttúrufræðistofnun.
Birnan var ekki smituð af tríkínum en í maga fannst sníkjuþráðormur (Contracaecum sp.) sem oft finnst t.d. í maga kampsels og hringanóra.
Birnan hafði ekki nærst áður en hún var felld en nokkrar gráleitar vængfjaðrir, væntanlega úr fýl, fundust í maga og nokkrar bringufjaðrir af svartfugli fundust aftast í meltingarveginum.
Tennur birnunnar voru óslitnar. Ljósm. Karl Skírnisson
Þrjár vetrarlínur (hvítar örvar) sáust í litaðri þunnsneið af tannrót þannig að sé miðað við að fæðingadagur hvítabjarnarhúna sé um áramót, þá var birnan 40 mánaða gömul. Ljósm. Karl Skírnisson