Ár liðið frá upphafi goss í Eyjafjöllum
Á Fimmvörðuhálsi kom upp dílótt millibasalt, meginhlutinn storknaði sem hraun. Samskonar basalt kom einnig við sögu í Eyjafjallajökli en þar var það blandað líparíti áþekku því sem myndaðist í gosi þar árið 1821. Megnið af þessari blöndu sem flokkast sem benmorít og trakýt varð að mjög fínkorna ösku sem dreifðist víða um norðurhvel jarðar.
Eldfjallaútfellingar mynda skánir á yfirborði hrauna, í hraunhellum eða við gígop. Flestar útfellinganna verða til beint úr hraunkvikugasi sem streymir út um op í kólnandi berginu, aðrar myndast úr vatnsgufu og þá einkum í hraunhellum og gígum. Útfellingarnar eru margar vatnsleysanlegar og því viðkvæmar fyrir úrkomu og veðrun og endast yfirleitt ekki lengi nema í hellum. Það er því mikilvægt að skoða gosstöðvarnar tímanlega til að ná sýnum af þeim útfellingum sem þar myndast áður en þær hverfa.
![]() Rannsóknir á erfðamengjum villtra dýra munu gegna mikilvægu hlutverki í verndarlíffræði til að meta erfðabreytileika og finna litningasvæði sem svarar vali í aðlögun. Ljósm. Jóhann Óli Hilmarsson
|

Sprunga í Goðahrauni 5. júní 2010. Grænleitar útfellingar sjást í sprungunni og glóandi hraun undir. Hitastig í sprungunni er langt yfir 400°C, sennilega u.þ.b. 700°C. Ljósm. Kristján Jónasson. | Rafeindasmásjármynd af útfellingum úr sprungu í Goðahrauni. Þetta er að öllum líkindum steindin aphthitalít ((K,Na)3Na(SO4)2), en henni hefur einu sinni áður verið lýst frá Íslandi. Myndin er tekin í rafeindasmásjá Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. |
Farnar voru fjórar ferðir á Fimmvörðuháls, ein meðan á gosinu stóð og síðan í byrjun júní, í lok júlí og um miðjan september. Þá voru útfellingar á kaldri ösku norðan Eyjafjalla kannaðar í júlí. Hafin er rannsókn á útfellingunum með röntgenbrotgreiningu og rafeindasmásjárgreiningu.
Nánar verður fjallað um þessar rannsóknir í ársskýrslu og á ársfundi Náttúrufræðistofnunar sem haldinn verður 1. apríl n.k.
![]() Rannsóknir á erfðamengjum villtra dýra munu gegna mikilvægu hlutverki í verndarlíffræði til að meta erfðabreytileika og finna litningasvæði sem svarar vali í aðlögun. Ljósm. Jóhann Óli Hilmarsson
|
![]() Rannsóknir á erfðamengjum villtra dýra munu gegna mikilvægu hlutverki í verndarlíffræði til að meta erfðabreytileika og finna litningasvæði sem svarar vali í aðlögun. Ljósm. Jóhann Óli Hilmarsson
|
Fimmvörðuháls 1. apríl 2010. Kvikustrókur stendur upp úr gígnum Móða, gígurinn Magni til hægri. Ljósm. Kristján Jónasson. | Eyjafjallajökull 11. maí 2010. Fínkornótt aska berst til suðurs frá jöklinum. Ljósm. Kristján Jónasson. |