Hrafnaþing hefst á ný


Krummi.

Fyrsta erindi vormisseris á Hrafnaþingi verður miðvikudaginn 26. janúar kl. 15:15. Sigmundur Einarsson, jarðfræðingur á Náttúrufræðistofnun, mun flytja erindi um Búrfellshraun, hraunið við Urriðaholt.

 
Hrafnaþing er heiti á fræðsluerindum Náttúrufræðistofnunar og er þetta í níunda sinn sem það er haldið. Hrafnaþingið er nú haldið í nýjum heimkynnum Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ, 3. hæð kl. 15:15-16:00. Sjá kort.
 
Hrafnaþing er opið öllum. Verið velkomin á Hrafnaþing!