Aldurshlutföll rjúpu á veiðitíma 2009

Niðurstöður eru birtar jafnóðum hér á vef Náttúrufræðistofnunar en þær verða meðal annars notaðar við mat á stofnstærð rjúpunnar í landinu.

Fyrstu niðurstöður frá veiðitíma 2009: Samtals er búið að aldursgreina 1321 fugl og stærstur hluti þeirra er af Norðausturlandi, um 64%. Hlutfall ungfugla af heildinni er 78%. Stefnt er að því að aldursgreina 400−500 fugla úr hverjum landshluta, þannig að mikið vantar enn uppá fullt sýni.

Landshluti

Fullo

Ungar

Samtals

% ungar

Vesturland

12

42

54

78%

Vestfirðir

58

217

275

79%

Norðvesturland

18

66

84

79%

Norðausturland

199

644

843

76%

Austurland

10

55

65

85%

Samtals

297

1024

1321

78%

 


Karri á flugi, á vinstri væng má sjá að hann er á fyrsta ári. Ljósm. Daníel Bergmann.

 

Sendið vængina til Náttúrufræðistofnunar
Sérfræðingar Náttúrufræðistofnunar hafa um áratuga skeið rannsakað aldurshlutföll í rjúpnaafla. Á lit flugfjaðra rjúpunnar er hægt að greina á milli tveggja aldurshópa, fugla á fyrsta ári og eldri fugla. Þessi gögn eru m.a. notuð til að reikna út heildarstofnstærð rjúpunnar í landinu og eins til að rannsaka afföll. Veiðimenn, sem tilbúnir eru að taka þátt í þessari könnun, eru beðnir um að klippa annan vænginn af öllum þeim rjúpum sem þeir fella. Fuglum af sama veiðisvæði eða úr sömu sveit ber að halda sér í poka þannig að hægt sé að sundurgreina sýnin eftir landshlutum.

Vængina á að senda til:

Náttúrufræðistofnun Íslands
Pósthólf 5320
125 Reykjavík

Stofnunin mun greiða sendingarkostnað sé þess óskað. Menn eru beðnir um að láta nafn sitt og heimilisfang fylgja með sýnum þannig að hægt sé að senda þeim, sem það vilja, niðurstöður greininga úr þeirra sýni og heildarniðurstöðurnar í lokin.

 


Flugfjaðrir á fyrsta árs fugli. Ljósm. Erling Ólafsson.

Litur flugfjaðra segir til um aldur
Til að aldursgreina rjúpur bera menn saman lit á flugfjöður nr. 2 og flugfjöður nr. 3 (talið utan frá). Fjaðurstafurinn sjálfur er alltaf dökkur hjá íslenskum rjúpum óháð aldri, en við erum að bera saman litinn á föninni sjálfri, ekki fjaðurstafnum. Hjá fuglum á 1. ári er flugfjöður nr. 2 dekkri en nr. 3 eins og hér sést. Ef smellt er á myndina hér til hægri, sést samanburðurinn. Hjá fullorðnum fuglum, fuglum á 2. ári og eldri, eru fjaðrir nr. 2 og 3 jafndökkar eða nr. 3 dekkri. Hjá sumum fullorðnum fuglum eru engin litarefni í fönum flugfjaðra nr. 2 og 3.