Aldurshlutföll rjúpu á veiðitíma 2008

Náttúrufræðistofnun hvetur rjúpnaskyttur til að klippa annan vænginn af rjúpum sem þær veiða og senda stofnuninni. Af vængjunum má ráða hvort um er að ræða fugl á fyrsta ári eða eldri fugl. Fuglum af sama veiðisvæði eða úr sömu sveit þarf að halda saman í poka þannig að hægt sé að sundurgreina sýnin eftir landshlutum.

Niðurstöður eru birtar jafnóðum hér á vef NÍ en þær verða meðal annars notaðar við mat á stofnstærð rjúpunnar í landinu.

Fyrstu niðurstöður frá veiðitíma 2008: Samtals er búið að aldursgreina 599 fugla og stærstur hluti þeirra er af Norðausturlandi, um 60%. Hlutfall ungfugla af heildinni er 78%. Stefnt er að því að aldursgreina 400−500 fugla úr hverjum landshluta, þannig að mikið vantar enn uppá fullt sýni.

Sendið vængina til NÍ
Sérfræðingar Náttúrufræðistofnunar hafa um áratuga skeið rannsakað aldurshlutföll í rjúpnaafla. Á lit flugfjaðra rjúpunnar er hægt að greina á milli tveggja aldurshópa, fugla á fyrsta ári og eldri fugla. Þessi gögn eru m.a. notuð til að reikna út heildarstofnstærð rjúpunnar í landinu. Veiðimenn, sem tilbúnir eru að taka þátt í þessari könnun, eru beðnir um að klippa annan vænginn af öllum þeim rjúpum sem þeir fella. Fuglum af sama veiðisvæði eða úr sömu sveit ber að halda sér í poka þannig að hægt sé að sundurgreina sýnin eftir landshlutum.

Vængina á að senda til:

Náttúrufræðistofnun Íslands
Pósthólf 5320
125 Reykjavík

Stofnunin mun greiða sendingarkostnað sé þess óskað. Menn eru beðnir um að láta nafn sitt og heimilisfang fylgja með sýnum þannig að hægt sé að senda þeim, sem það vilja, niðurstöður greininga úr þeirra sýni og heildarniðurstöðurnar í lokin.

Litur flugfjaðra segir til um aldur
Til að aldursgreina rjúpur bera menn saman lit á flugfjöður nr. 2 og flugfjöður nr. 3 (talið utan frá). Fjaðurstafurinn sjálfur er alltaf dökkur hjá íslenskum rjúpum óháð aldri, en við erum að bera saman litinn á föninni sjálfri, ekki fjaðurstafnum. Hjá fuglum á 1. ári er flugfjöður nr. 2 dekkri en nr. 3 eins og hér sést. Ef smellt er á myndina hér til hægri, sést samanburðurinn. Hjá fullorðnum fuglum, fuglum á 2. ári og eldri, eru fjaðrir nr. 2 og 3 jafndökkar eða nr. 3 dekkri. Hjá sumum fullorðnum fuglum eru engin litarefni í fönum flugfjaðra nr. 2 og 3.

Vegleg verðlaun í boði

Skotvís leggur til verðlaun til að örva veiðimenn til þátttöku í þessu verkefni. Verðlaunin eru gps-tæki að gerðinni Garmin eTrex legend HCx. Nöfn allra sem skila inn vængjum fara í sérstakan pott sem dregið verður úr 2. janúar 2009.