Votviðrasöm Safnanótt
Ýmislegt var í boði hjá Náttúrufræðistofnun á Safnanótt, bæði fyrir börn og fullorðna, og tengdist flest þema Safnanætur; ljósi. Fyrirlestrar um ljóstillífun og upphaf og þróun lífs í Surtsey voru fluttir í Möguleikhúsinu.
![]() |
![]() |
Þreifað fyrir sér í 'myrkraboxi'. Ljósm. Anette Th. Meier. |
Meðal þeirra gripa sem finna átti var djúpsjávarfiskurinn Lúsifer, Himantolophus groenlandicus. Ljósm. Anette Th. Meier. |
Margt var að gerast í Náttúrugripasafninu við Hverfisgötu þar sem Náttúrufræðistofnun kynnti fyrir gestum og gangandi mikilvægi ljóss fyrir allt líf á jörðinni. Þar var ýmislegt í boði fyrir börnin, m.a. 'myrkrabox' þar sem þreifa átti fyrir sér í myrkum kassa og giska á innihaldið. Síðan var hægt að fá frekari upplýsingar um innihaldið og leita að raunverulega gripnum innan sýningarsalanna. Einnig var hægt að skoða þörunga undir smásjá.
![]() |
![]() |
Ljósberi, Lychnis alpina, var einnig einn þeirra gripa sem finna átti í 'myrkraboxinu'. Ljósm. Anette Th. Meier. |
Þörungar skoðaðir í smásjá. Ljósm. Anette Th. Meier. |
Vert er að geta þess að ýmislegt tengt Safnanótt, eins og t.d. 'myrkraboxin' og Safnanæturbarmmerki, verður áfram í boði í sýningarsölum Náttúrufræðistofnunar. Sýningarsalirnir eru opnir á milli 13.30 og 16 á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum - aðgangur ókeypis.
Á Hlemmi var örsýning um rjúpuna, sem var sérstaklega skreytt rjúpuljósaseríu fyrir Safnanótt. Örsýningin um rjúpuna og árstíðirnar verður uppi í nokkrar vikur í viðbót.
![]() |
![]() |
Áhugasamir safnverjar. Ljósm. Anette Th. Meier. | Húsnæði Náttúrufræðistofnunar var skreytt í bak og fyrir með auðkenni stofnunarinnar – hrafninum. Ljósm. Anette Th. Meier. |
Húsnæði Náttúrufræðistofnunar að Hlemmi 3 var skreytt í tilefni Safnanætur og lýsti auðkenni stofnunarinnar – hinn mikli vísdómsfugl hrafninn – upp glugga húsnæðisins.