![Mynd af Maríulykill (Primula stricta) Mynd af Maríulykill (Primula stricta)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/1f128f142712bc03aa2f9fa8e2a5b9aa.jpg?itok=wy0DfUsi)
Útbreiðsla
Afar sjaldgæf jurt, aðeins fundin á nokkru svæði innan til í Eyjafirði (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Rök flög, einkum þar sem jarðvegur er grunnur yfir klöppum, deigir árbakkar (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Lýsing
Fremur lágvaxin planta (10–20 sm) með blöðin í stofnhvirfingu og nokkur bleik blóm á enda blaðlaus stilksins. Blómgast í maí–júní.
BlaðStöngullinn blaðlaus, óloðinn. Blöðin í stofnhvirfingu, spaðalaga, 1–2 sm á lengd, dragast jafnt saman í stilk (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin standa nokkur saman í sveip efst á ógreindum stöngli. Krónupípan 7–8 mm á lengd með útbreiddum kraga og fimm bleikrauðum krónuflipum með skerðingu í endann. Bikarinn 4–5 mm á lengd, klofinn fjórðung niður, grænleitur með dökkum, fíngerðum dröfnum ofan til. Fræflar fimm, styttri en krónupípan. Ein fræva. Blómleggirnir 5–10 mm á lengd með stuttum, mjóum stoðblöðum við grunninn (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist engri annarri íslenskri tegund.
Válistaflokkun
EN (tegund í hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
EN | LC |
Forsendur flokkunar
Maríulykill er þekktur frá nokkrum fundarstöðum við Eyjafjörð en tegundinni virðist hafa hnignað á síðustu árum.
Viðmið IUCN: B1; B2b(iv)
B1. Útbreiðsla áætluð minni en 100 km2.B2. Dvalar- eða vaxtarsvæði áætlað minna en 10 km2 og mat bendir til:b. Stofn hefur sífellt minnkað samkvæmt athugun, ályktun eða áætlun eftirfarandi;(iv) fjölda fundarstaða eða undirstofna.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Maríulykill er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Maríulykill er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Maríulykill (Primula stricta) Útbreiðsla - Maríulykill (Primula stricta)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/a24a18b0f03420440e67b4ecc8c9ec06.jpg?itok=ycBE5-S_)
Myndir
![Mynd af Maríulykill (Primula stricta) Mynd af Maríulykill (Primula stricta)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/dc35a788d2cd82d1878d7e3c5fc451ce.jpg?itok=WElg6lOy)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Rök flög, einkum þar sem jarðvegur er grunnur yfir klöppum, deigir árbakkar (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Maríulykill (Primula stricta)