![Mynd af Tjarnablaðka (Persicaria amphibia) Mynd af Tjarnablaðka (Persicaria amphibia)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/357d90e4c31f4e041e9c95b105636ca0.jpg?itok=E4Zba9Ia)
Útbreiðsla
Mjög sjaldgæf, aðeins fundin á tveim stöðum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Grunn stöðuvötn eða stórar tjarnir (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Stórvaxin vatnajurt (20–60 sm) með rauðmenguðum blöðum og bleikum blómklösum. Blómgast í júlí.
BlaðJurtin hárlaus. Blöðin mjóegglaga eða lensulaga, stakstæð, 4–13 sm á lengd og 1,5–3 sm á breidd, grágræn eða nokkuð rauðleit, stilkuð, slíðurfætt. Blaðkan með skýrum miðstreng og reglulegum hliðarstrengjum (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin mörg saman í axi efst á stönglinum, fimmdeild. Krónublöðin rauðbleik á lit, snubbótt. Fræflar fimm, frævan með tveim stílum, samvöxnum neðst (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningAuðþekkt í blóma. Óblómguð líkist hún nykru en þekkist best á greinilega fjaðurstrengjóttum blöðkum, oft með þverum grunni.
Válistaflokkun
EN (tegund í hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
EN | LC |
Forsendur flokkunar
Tjarnarblaðka er fundin á fjórum stöðum á vestan- og sunnanverðu landinu en virðist horfin af einum fundarstaðanna.
Viðmið IUCN: B1; B2ab(v)
B1. Útbreiðsla áætluð minni en 100 km2.B2. Dvalar- eða vaxtarsvæði áætlað minna en 10 km2 og mat bendir til að:a. Útbreiðsla stofns er mjög slitrótt eða takmörkuð við aðeins einn stað. b. Stofn hefur sífellt minnkað samkvæmt athugun, ályktun eða áætlun einhvers eftirfarandi þátta;(iv) fjölda fundarstaða eða undirstofna.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Tjarnablaðka er á válista í hættuflokki EN (í hættu).
Válisti 1996: Tjarnablaðka er á válista í hættuflokki EN (í hættu).
Verndun
Tjarnablaðka er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Tjarnablaðka (Persicaria amphibia) Útbreiðsla - Tjarnablaðka (Persicaria amphibia)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/00dff994ae5601e986524534c9a52759.jpg?itok=XvKIs48I)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Grunn stöðuvötn eða stórar tjarnir (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Tjarnablaðka (Persicaria amphibia)