![Mynd af Mýraertur (Lathyrus palustris) Mynd af Mýraertur (Lathyrus palustris)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/b6eda430750959abd2467d4fa4691e0e.jpg?itok=lY4QPaGU)
Útbreiðsla
Fremur sjaldgæfar á Íslandi, fundnar á nokkrum stöðum bæði á Suðurlandi og á Norðurlandi (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Mýraertur vaxa í graslendi, deiglendi eða kjarri (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Lýsing
Planta með vafþráðum framan á blöðunum, eitt til þrjú pör striklaga smáblaða. Blómgast sjaldan hér en hefur annars fjólublá blóm.
BlaðFraman á blöðunum eru vafþræðir sem jurtin notar til að festa sig við allan þann gróður sem vex í nágrenni hennar. Hefur aðeins eitt til þrjú pör af striklaga smáblöðum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
BlómKlasar blómfáir, blómin fjólublá. Blómgast sjaldan hér (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
AldinAldinið er belgur, myndaður af einu fræblaði (Lid og Lid 2005).
GreiningÞær minna nokkuð á umfeðming en blöðin hafa aðeins tvö til þrjú pör af striklaga smáblöðum og blómklasarnir eru blómfáir. Blómin heldur rauðleitari en á umfeðmingi.
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Mýraertur (Lathyrus palustris) Útbreiðsla - Mýraertur (Lathyrus palustris)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/e61c2c3d42dd50f79b299a4dad7afdbd.jpg?itok=3Oc_pHAg)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Mýraertur vaxa í graslendi, deiglendi eða kjarri (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Mýraertur (Lathyrus palustris)