![Mynd af Hnotsörvi (Zannichellia palustris) Mynd af Hnotsörvi (Zannichellia palustris)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/57a8a862928696aea39b1fdb27ec4bb0.jpg?itok=3ol1sXP4)
Útbreiðsla
Fremur sjaldgæf jurt, vantar í suma landshluta (Hörður Kristinsson 1998).Vistgerðir
Grunn síki eða vatnsrásir á láglendi, oft í lænum sem hálfsalt vatn fellur inn í á flóði. Finnst einnig við jarðhita, lengra inni í landi (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Lýsing
Fíngerð, fremur lágvaxin (15–30 sm) vatnajurt með mjó blöð og bjúglaga aldin í blaðöxlunum. Blómgast í júlí.
BlaðFíngerð, marggreind jurt. Blöðin gagnstæð eða kransstæð, oftast þrjú í kransi, 1,5–5 sm á lengd, þráðmjó (0,3 mm), með himnukenndum slíðrum (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin í blaðöxlunum, einkynja, venjulega eitt karlblóm og eitt kvenblóm í hverjum blaðkransi. Kvenblómin hafa þrjár til fimm frævar (Hörður Kristinsson 1998).
AldinAldinin bjúglaga, 2–3 mm á lengd, með smá trjónu í endann (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist þráðnykru og smánykru, hnotsörvið þekkist best á hinum bjúglaga aldinum í blaðöxlunum.
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Hnotsörvi (Zannichellia palustris) Útbreiðsla - Hnotsörvi (Zannichellia palustris)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/17405bcf99ebcf0cd58f86abaf1d5ed5.jpg?itok=U67ii0sh)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Grunn síki eða vatnsrásir á láglendi, oft í lænum sem hálfsalt vatn fellur inn í á flóði. Finnst einnig við jarðhita, lengra inni í landi (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Hnotsörvi (Zannichellia palustris)