![Mynd af Vallarfoxgras (Phleum pratense) Mynd af Vallarfoxgras (Phleum pratense)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/b830caed5ce6c64f52d12107953dffb2.jpg?itok=59aeEr2d)
Útbreiðsla
Innflutt grastegund sem lengi hefur verið ræktuð í sáðsléttum, algeng í sáðsléttum og túnjöðrum um allt land (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Tún og sáðsléttur, slæðingur við bæi (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Fremur hávaxin grastegund (30–100 sm) með allbreið blöð og grágrænan axpunt. Blómgast í júní–júlí.
BlaðBlöðin allbreið, 4–8 mm. Slíðurhimna 2–4 mm (Hörður Kristinsson 1998).
BlómSmáöxin eru einblóma, þétt saman í sívölu 3–8 sm löngu, 8–12 mm breiðu, grágrænu samaxi (axpunti). Axagnir 4–7 mm á lengd, með löngum randhárum á kilinum, mjókka snöggt ofan til og ganga fram í grænan, 1–3 mm langan odd. Blómagnir 2–3 mm á lengd. Frjóhirslur fjólubláar, hanga út úr axinu um blómgunartímann (Hörður Kristinsson 1998).
AldinAldinið er hneta þar sem fræskurn og aldinhýði er runnið saman í eitt (Lid og Lid 2005).
GreiningLíkist helst háliðagrasi sem hefur þó allt öðruvísi axagnir auk þess sem smáöxin eru lausari á axhelmunni.
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Vallarfoxgras (Phleum pratense) Útbreiðsla - Vallarfoxgras (Phleum pratense)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/8c1ee47f6d502c5d89ad188110839fc3.jpg?itok=mUImKXLJ)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Tún og sáðsléttur, slæðingur við bæi (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Vallarfoxgras (Phleum pratense)