![Mynd af Eggtvíblaðka (Listera ovata) Mynd af Eggtvíblaðka (Listera ovata)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/ae678f0155c75379570352a4f95ba889.jpg?itok=hqhTUDPA)
Útbreiðsla
Sjaldgæf og hvergi mikið af henni, þó má hana finna í flestum landshlutum nema miðhálendinu (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Skóglendi og grasbollar (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Hávaxin jurt (30–60 sm) með tvö gagnstæð laufblöð og nokkur blóm í gisnum klasa. Blómgast í júní–júlí.
BlaðBlómleggurinn og stöngullinn kirtilhærður. Tvö heilrend, egglaga eða sporbaugótt, bogstrengjótt laufblöð neðan til á stönglinum, 6–12 sm löng og 2,4–6 sm breið (Hörður Kristinsson 1998).
BlómEinn, 5–8 sm langur, gisinn blómklasi efst á stönglinum (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningAuðþekkt á hinum tveim, stóru, egglaga blöðum. Hjartatvíblaðka hefur miklu minni hjartalaga blöð.
Verndun
Eggtvíblaðka er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda. Hún er þó ekki á válista.
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Eggtvíblaðka (Listera ovata) Útbreiðsla - Eggtvíblaðka (Listera ovata)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/45191bfa760bd4f43ffaa24cb2d378b0.jpg?itok=Rw4vk-pB)
Myndir
![Mynd af Eggtvíblaðka (Listera ovata) Mynd af Eggtvíblaðka (Listera ovata)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/111b0c4ffebc126fde16904a28500bc2.jpg?itok=WwveTe9D)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Skóglendi og grasbollar (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Eggtvíblaðka (Listera ovata)