Fréttir
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_right
- 2021 chevron_right
- 2020 chevron_right
- 2019 chevron_left
- 2018 chevron_right
- 2017 chevron_right
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_right
- 2014 chevron_right
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Fréttir
Lúsmý nýtur góðs af góðviðrinu
Á Náttúrufræðistofnun Íslands hefur verið fylgst með framvindu lúsmýs og upplýsinga safnað. Dregist hefur að koma fróðleik á framfæri þar sem treglega gekk að finna tegundinni fræðiheiti. Þegar tegundarheiti liggur ekki fyrir er ómögulegt að afla upplýsinga um útbreiðslu og lífshætti.
Frjómælingar í apríl og maí
Frjómælingar hófust á Akureyri 25. mars en einungis nokkur frjókorn mældust þann mánuðinn. Í apríl var fjöldi frjókorna 680 frjó/m3 sem er langt yfir meðallagi. Stærsti hluti þeirra voru aspar- og birkifrjó og hafa aldrei áður mælst svo mörg asparfrjó í aprílmánuði.
Rjúpnatalningar 2019
Rjúpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands vorið 2019 er lokið. Rjúpum fækkaði víðast hvar nema í lágsveitum á Norðausturlandi. Miðað við ástand stofnsins frá síðustu aldamótum er rjúpnafjöldinn 2019 mestur á Norðausturlandi í öðrum landshlutum er hann í eða undir meðaltali.
Fuglamerkingar 2018
Frá upphafi merkinga árið 1921 hafa verið merktir 740.524 fuglar af 158 tegundum. Helmingur merktra fugla árið 2018 voru auðnutittlingar (10.945). Aðrir fuglar sem mikið var merkt af eru skógarþröstur (2.844), snjótittlingur (1.290), kría (950), lundi (777) og æðarfugl (551).
Óvænt birkifrjó í lofti
Á sumardaginn fyrsta, 25. apríl s.l., blésu sterkir vindar aust-suð-austan frá Evrópu og barst með þeim ryk sem ættað er jafnvel alla leið frá Sahara.
Frjókorn komin í loftið
Trjátegundin elri, einnig nefnd ölur, byrjaði að blómgast um síðustu mánaðrmót og dreifa frjóum sínum. Fólk með birkiofnæmi getur fundið fyrir ofnæmiseinkennum því frjókorn birkis og elris hafa sömu ofnæmisvaka. Helstu tegundir sem valda ofnæmi á Íslandi eru birki, grös og súrur.
Ársfundur Náttúrufræðistofnunar Íslands og útgáfa...
Á ársfundinum flutti Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra ávarp. Ráðherra benti á mikilvægi þess að stofnanir eins og Náttúrufræðistofnun undirbyggi af kostgæfni og vandvirkni ákvarðanir stjórnvalda með vísindalegum rannsóknum og úttektum.
Ný og endurskoðuð landupplýsingagögn gerð...
Fyrr á árinu voru gögnin birt í kortasjám stofnunarinnar, Vistgerðir og mikilvæg fuglasvæði á Íslandi og Sérstök vernd náttúrufyrirbæra en nú eru landupplýsingagögn aðgengileg í lýsigagnagátt og gátt til niðurhals.