Fréttir
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_right
- 2021 chevron_right
- 2020 chevron_right
- 2019 chevron_left
- 2018 chevron_right
- 2017 chevron_right
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_right
- 2014 chevron_right
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Fréttir
Kortlagning á útbreiðslu lúpínu
Útbreiðsla lúpínu var upphaflega birt árið 2016 í tengslum við flokkun og kortlagningu vistgerða landsins og uppfært vistgerðakort var gefið út í desember 2018. Nú er þriðja útgáfa lúpínuútbreiðslu aðgengileg sem flákar til niðurhals í niðurhalsþjónustu Landmælinga Íslands.
Hrafnaþing: Kortlagning spendýra í Evrópu
Í fyrirlestrinum verður fjallað um endurútgáfu bókarinnar „The Atlas of European Mammals“ sem kom út árið 1999. Við endurútgáfu bókarinnar verður ekki einungis um endurmat tegunda að ræða heldur bætast nú við lönd í Austur-Evrópu þannig að umfang kortlagðra svæða tvöfaldast.
Samantekt frjómælinga sumarið 2019
Á Akureyri var heildarfjöldi frjókorna 4.945 frjó/m3 og voru grasfrjó langalgengust (59%). Hlutfall birkifrjóa var 16%, asparfrjóa 7% og súrufrjóa 2%. Tæplega 17% frjókorna voru af ýmsum tegundum sem jafnan ber lítið á. Flest frjókorn voru í lofti í ágústmánuði eða þriðjungur allra frjókorna.
Vel sótt Vísindavaka
Á Vísindavöku kynnti vísindafólk frá háskólum, stofnunum og fyrirtækjum rannsóknaverkefni sín fyrir almenningi á lifandi og skemmtilegan hátt á fjölda sýningarbása.
Innlit í vísindasafn á Vísindavöku Rannís
Rannís stendur fyrir Vísindavöku á Íslandi, en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu undir heitinu „European Researchers' Night“.
Bernarsamningurinn 40 ára
Bernarsamningurinn var undirritaður 19. september 1979 og staðfestur hér á landi árið 1993. Hann er vistaður hjá Evrópuráðinu og nær til 51 ríkis sem flest eru í Evrópu.
Frjómælingar í ágúst
Á Akureyri var heildarfjöldi frjókorna 1478 frjó/m3, sem er töluvert yfir meðaltali, og voru þau nær samfellt í lofti allan mánuðinn. Grasfrjó voru langalgengust eða 1400 frjó/m3. Aðrar frjótegundir sem mældust voru súru- og lyngfrjó.
Veiðiþol rjúpnastofnsins
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur metið veiðiþol rjúpnastofnsins haustið 2019 og hafa niðurstöðurnar verið kynntar umhverfis- og auðlindaráðherra með bréfi.
Litast um á Lauffellsmýrum
Lauffellsmýrar eru víðlent votlendissvæði við Hellisá, suðvestan vegar inn í Lakagíga. Að mýrunum liggur Skaftáreldahraun frá árinu 1783 að norðvestan en að sunnan er Lauffell og fjalllendið þar suðvestur af.