Fuglatalning í janúar 2007

Hin árvissa vetrarfuglatalning fór að þessu sinni fram helgina 6.-7. janúar 2007 en Náttúrufræðistofnun Íslands hefur skipulagt þessar talningar frá 1952. Talið var á um 150 einstökum svæðum um land allt og hafa niðurstöður þegar borist frá 132 svæðum. Alls tóku um 130 manns þátt í talningunni og voru það allt sjálfboðaliðar eins og ávallt í sögu þessara talninga. Þetta eru álíka mörg svæði og í fyrra en þá var metþátttaka. Bráðabirgðaniðurstöður má finna hér og þar er jafnframt hægt að skoða tölur allt til 2002, ásamt samanburði milli ára.

Æður algengust sem fyrr

Þegar hafa verið skráðir um 112 þúsund fuglar af 75 tegundum og bendir flest til þess að tegundirnar verði nokkru færri en undanfarin ár og munar þar mestu um þann fjölda flækingsfugla sem kemur fram hverju sinni. Æður er langalgengust sem fyrr en óvenju fáir snjótittlingar sáust eins og jafnan þegar snjór er lítill. Óvenjumargar súlur sáust en þær koma yfirleitt að landinu síðla í janúar og fleiri hafernir (12) sáust en nokkru sinni áður, allt frá Meðallandi í austri, vestur og norður um til Vestfjarða. Að öðru leyti virðast niðurstöður ekki skera sig verulega frá síðustu árum en nánar verður fjallað um talningu þegar öll gögn hafa borist. Meðal sjaldgæfra fuglategunda má nefna hvítönd í Meðallandi og kúfönd á Sogi en sú síðarnefnda er sárasjaldgæfur flækingur frá Norður-Ameríku og er afar lík duggönd.

Aðeins einn olíublautur fugl á Rosmhvalanesi !

Nokkuð af olíu fór í sjóinn er Wilson Muuga strandaði við Hvalsnes skömmu fyrir jól en olían virtist hafa brotnað fljótt niður og menn urðu ekki varir við olíublauta fugla í kjölfarið. Fuglatalningin nú í janúar náði til allra þeirra strandsvæða sem kynnu að hafa orðið fyrir olíumengun úr strandinu. Aðeins einn olíublautur æðarfugl sást (í Ósum við Hafnir) en slíkir fuglar sjást yfirleitt í hverri talningu, án þess að stórslys hafi orðið. Leitað var sérstaklega að dauðum olíufuglum á allri strandlengjunni frá Hvalsnesi norður í Garð, með hjálp þrautþjálfaðs fuglahunds (Dr. Finns) en enginn olíufugl fannst á þeirri leið.

Kristinn Haukur Skarphéðinsson

hefur umsjón með vetrarfuglatalningum á NÍ.