Útbreiðsla
Sjaldgæfur, hefur aðeins fundist í útsveitum beggja megin Eyjafjarðar. Hann er nokkuð víða á því svæði, bæði á Siglufirði, í Héðinsfirði og Ólafsfirði og einnig á Látraströnd og í Fjörðum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Hann vex einkum á mjög snjóþungum stöðum, einkum í krikum undir börðum eða gilbrekkum.Lýsing
Hávaxinn fífill (40–70 sm) með blöðóttum stöngli með gulum blómkörfum í toppinn. Blómgast í ágúst.
BlaðStöngull blöðóttur. Blaðkan ljósgræn, tennt, hjartalaga, greipfætt (Lid og Lid 2005).
BlómMargar körfur á löngum leggjum í hálfsveip, um 3 sm breiðar. Krónublöð gul. Reifablöð striklaga með svört kirtilhár. Reifablöðin í tveim krönsum (Lid og Lid 2005).
AldinAldin ljósgul með tíu rifjum. Svifhárakrans gráhvítur (Lid og Lid 2005).
GreiningHann minnir nokkuð á suma undafífla.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Hann vex einkum á mjög snjóþungum stöðum, einkum í krikum undir börðum eða gilbrekkum.Biota
- Tegund (Species)
- Hjartafífill (Crepis paludosa)