![Mynd af Hagastör (Carex pulicaris) Mynd af Hagastör (Carex pulicaris)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/ba1e8daa49ab1ccc257d50f87d1f61b9.jpg?itok=k4KzSMxE)
Útbreiðsla
Sjaldgæf stör sem finnst á nokkru svæði á norðanverðum Austfjörðum, á Snæfellsnesi og á Ströndum en ófundin annars staðar. Allir fundarstaðir hagastarar eru á láglendi neðan 200 m hæðar (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Hálfdeigjur.Lýsing
Heldur smávaxin stör (15–20 sm) með einu gisnu axi í endann. Blómgast í júlí.
BlaðStráin sívöl, gáruð. Blöðin grönn (1 mm), grópuð (Hörður Kristinsson 1998).
BlómEitt fremur gisið ax, kvenblómin neðst, karlblómin efst. Þegar kvenblómin þroskast vísa aldinin beint út eða niður á við. Axhlífar oddmjóar, ljósbrúnar, himnurendar. Hulstrin grönn (1 mm), grópuð (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst broddastör en hún er auðkennd á broddinum sem vex upp úr hulstrinu.
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Hagastör (Carex pulicaris) Útbreiðsla - Hagastör (Carex pulicaris)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/2201b64082ce079a08954351b958acb1.jpg?itok=nATx11CP)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Hálfdeigjur.Biota
- Tegund (Species)
- Hagastör (Carex pulicaris)