Útbreiðsla
Mjög sjaldgæf stör á Íslandi, aðeins fundin á tveim stöðum. Hún vex í grasi vöxnum hlíðum undir Eyjafjöllum og í Dalasýslu (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Þurrar grasbrekkur.Lýsing
Allhávaxin stör (20–60 sm) með græn, leggjuð kvenöx.
BlaðMyndar smá þúfur, án skriðulla jarðstöngla. Neðri blaðslíður loðin. Blöð flöt og ljósgræn, 2–4 mm breið. Strá hvassstrend, rúnnuð efst (Lid og Lid 2005).
BlómGræn, leggjuð kvenöx. Hulstur gljáandi, ljósgræn, taugalaus og án trjónu (Lid og Lid 2005).
Válistaflokkun
CR (tegund í bráðri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
CR | NE |
Forsendur flokkunar
Gljástör er þekkt frá tveimur stöðum á landinu, annar á því vestanverðu en hinn undir Eyjafjöllum. Talið er nánast öruggt að gljástör sé horfin af fundarstaðnum á vestanverðu landinu og þrátt fyrir að stöðugur stofn sé til staðar á hinum fundarstaðnum telst tegundin í bráðri hættu.
Viðmið IUCN: B1; B2a+b(iv)
B1. Útbreiðsla áætluð minni en 100 km2B2. Dvalar- eða vaxtarsvæði áætlað minna en 10 km2 og mat bendir til tveggja af þremur eftirtöldum atriðum:a. Útbreiðsla stofns er mjög slitrótt eða takmörkuð við aðeins einn stað.b. Stofn hefur sífellt minnkað samkvæmt athugun, ályktun eða áætlun eftirfarandi þáttar;(iv) fjölda fundarstaða eða undirstofna.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Gljástör er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Þurrar grasbrekkur.Biota
- Tegund (Species)
- Gljástör (Carex pallescens)