![Mynd af Finnungsstör (Carex nardina) Mynd af Finnungsstör (Carex nardina)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/17b52f33f60652ee7a12527a648c58cb.jpg?itok=yrchLvaj)
Útbreiðsla
Sjaldgæf stör, mest frá 600 upp í 1100 m hæð. Einkum fundin á hálendinu norðan jökla og á fjöllum við Eyjafjörð. Hæstu fundarstaðir eru á Mannshrygg í Hlíðarfjalli við Akureyri í 1140 m (Lid) og í Kaldbak við Eyjafjörð í 1120 m (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Fjallamelar.Lýsing
Mjög smávaxin stör (3–8 sm) með 1–2 stuttum öxum með karlblómum efst. Blómgast í júlí.
BlaðStráin sívöl. Blöðin þráðmjó, sívöl neðan til og grópuð, þrístrend í endann, oft á hæð við eða hærri en axið. Vex í toppum með þéttstæðum blaðslíðrum og oft bogsveigðum stráum og blöðum (Hörður Kristinsson 1998).
BlómOftast með einu, stuttu axi, sjaldan tveim, karlblóm efst í axinu. Axhlífar ljósbrúnar, himnukenndar, hulstrið ljósbrúnt, mjókkar jafnt upp í trjónu. Frænin tvö (Hörður Kristinsson 1998).
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Finnungsstör (Carex nardina) Útbreiðsla - Finnungsstör (Carex nardina)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/31a488182c4f93d789bf71fea98baf1f.jpg?itok=iWGImzeZ)
Myndir
![Mynd af Finnungsstör (Carex nardina) Mynd af Finnungsstör (Carex nardina)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/72bd294ef97fbf3b716550cf982fb217.jpg?itok=D5WTG6nX)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Fjallamelar.Biota
- Tegund (Species)
- Finnungsstör (Carex nardina)