![Mynd af Fölvastör (Carex livida) Mynd af Fölvastör (Carex livida)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/e192d7458cde6db0e8f21eea7c836c30.jpg?itok=0C8dAQJN)
Útbreiðsla
Sjaldgæf stör en er einna algengust utan til á Fljótsdalshéraði og við norðanverðan Faxaflóann, sjaldséð annars staðar. Venjulega vex hún aðeins á litlum blettum, þar sem flóarnir eru blautastir. Fölvastörin vex nær eingöngu á láglendi, hæstu fundarstaðir hennar eru á Fljótsheiði á Norðurlandi í um 250–330 m hæð, m.a. við Hrappstaðaselstjörn (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Vex eingöngu í rennblautum flóum sem dúa undan fótum manns (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Lýsing
Meðalhá stör (15–25 sm) með eitt til tvö upprétt, stuttleggjuð, fáblóma kvenöx og eitt karlax í toppinn. Blómgast í júní–júlí.
BlaðBlöðin blágræn, kjöluð og samanbrotin (Hörður Kristinsson 1998).
BlómEitt til tvö upprétt, stuttleggjuð, fáblóma kvenöx og eitt karlax í toppinn. Axhlífar brúnar með grænni miðtaug, snubbóttar. Hulstrið ljósblágrænt eða gulgrænt, trjónulaust. Þrjú fræni (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist belgjastör en fölvastör hefur þéttstæðari, blómfærri kvenöx og ljósari, trjónulaus hulstur.
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Fölvastör (Carex livida) Útbreiðsla - Fölvastör (Carex livida)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/5184f89a18acf860c2c963fa53fa64b4.jpg?itok=rDGkwHKp)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Vex eingöngu í rennblautum flóum sem dúa undan fótum manns (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Fölvastör (Carex livida)