![Mynd af Grámygla (Gnaphalium uliginosum) Mynd af Grámygla (Gnaphalium uliginosum)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/71aad6bf1de69e43f4801be970062781.jpg?itok=A1jSussN)
Útbreiðsla
Sjaldgæf, vex eingöngu á jarðhitasvæðum, aðallega á suðvesturlandi.Vistgerðir
Leirflög eða mosabreiður við hveri og laugar (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Lágvaxin jurt (5–12) með nokkrum blómum í þéttstæðum körfum. Blómgast í júlí–ágúst.
BlaðStöngullinn marggreindur, þéttvaxinn hvítum lóhárum. Blöðin gagnstæð, lensulaga eða striklaga, þéttlóhærð, 10–25 mm löng, 2–4 mm breið, breiðust ofan til (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin nokkur saman í litlum, þéttstæðum körfum með odddregnum reifablöðum sem eru himnukennd og brúnleit ofan til en græn með purpurarauðri rönd neðst. Krónupípan 1–1,5 mm á lengd, mjög grönn (0,1–0,2 mm), gulgræn að lit. Bikarinn ummyndaður í hárkrans (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist grámullu, grámyglan þekkist best á hinum marggreinda stöngli og að stofnstæðu blaðhvirfingarnar vantar.
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Grámygla (Gnaphalium uliginosum) Útbreiðsla - Grámygla (Gnaphalium uliginosum)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/82992ab4cefdd666f7ae69e7c560af69.jpg?itok=u83zjhwh)
Myndir
![Mynd af Grámygla (Gnaphalium uliginosum) Mynd af Grámygla (Gnaphalium uliginosum)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/24155ebbb771c5aad85fb8390cecb13b.jpg?itok=Yq80RoAi)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Leirflög eða mosabreiður við hveri og laugar (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Grámygla (Gnaphalium uliginosum)