![Mynd af Ljósalyng (Andromeda polifolia) Mynd af Ljósalyng (Andromeda polifolia)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/227aff0df874b6aa13e59c18a7df6d4b.jpg?itok=ieqnxuh-)
Útbreiðsla
Ljósalyng er mjög sjaldgæf planta, aðeins fundin á nokkrum stöðum í Brúnavík við Borgarfjörð eystri, á einum stað í Borgarfirði og utarlega á Fljótsdalshéraði (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Rakir móar og súrar mýrarþúfur.Lýsing
Sígræn planta með þykk, mjó blöð sem eru ljósgrá á neðra borði og klukkulaga bleik eða hvít blóm.
BlaðBlöðin sígræn, þykk og skinnkennd, mjó, lensulaga, ljósgrá á neðra borði. Blaðrendur niðurorpnar og neðra borðið hvítloðið (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin klukkulaga, legglöng, mörg saman á stöngulendum, bleik eða hvít (Hörður Kristinsson 1998).
AldinUpprétt, kringlótt hýðisaldin (Lid og Lid 2005).
Válistaflokkun
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | LC |
Forsendur flokkunar
Ljósalyng flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 30 hektarar.
Viðmið IUCN: D2
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Ljósalyng er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Ljósalyng er á válista í hættuflokki LR (í nokkurri hættu).
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Ljósalyng (Andromeda polifolia) Útbreiðsla - Ljósalyng (Andromeda polifolia)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/e6c67d1e695cbccae5e89e77fbd00c5a.jpg?itok=p_HpGJzV)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Rakir móar og súrar mýrarþúfur.Biota
- Tegund (Species)
- Ljósalyng (Andromeda polifolia)