![Mynd af Þrenningarmaðra (Galium trifidum) Mynd af Þrenningarmaðra (Galium trifidum)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/0c60f649c0ed6a9c4f4dac9af533fff4.jpg?itok=Uhz2keYy)
Útbreiðsla
Hún er fremur sjaldgæf og oft er mjög lítið af henni á hverjum vaxtarstað (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Vex í votlendi eða mýrum, oft sem undirgróður innan um mosa undir hávaxinni stör (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Lýsing
Mjög smávaxin planta (3–10 sm) með þrjú til fjögur laufblöð í hverjum kransi. Blómstrar hvítum blómum í júlí.
BlaðBlöðin í fjórblaða krönsum, lensulaga, mjósporbaugótt eða öfugegglaga, frambreið og snubbótt í endann. Stöngullinn strendur (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin fá saman, 1,5–2 mm í þvermál. Krónan samblaða, klofin í þrjá flipa. Bikarinn hárlaus. Fræflar þrír, ein fræva með klofnum stíl (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningAuðþekkt frá öðrum möðrum, m.a. á þrídeildum blómum.
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Þrenningarmaðra (Galium trifidum) Útbreiðsla - Þrenningarmaðra (Galium trifidum)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/649c8fc5ece8a3511ea1084a7c66e70a.jpg?itok=b7IhPJvV)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Vex í votlendi eða mýrum, oft sem undirgróður innan um mosa undir hávaxinni stör (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Þrenningarmaðra (Galium trifidum)