Útbreiðsla
Fremur sjaldgæf á Íslandi. Hún er mest á fjórum svæðum, á Reykjanesskaga, Snæfellsnesi, Flateyjarskaga og nyrst á Austfjörðum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Hún vex einkum í grasbrekkum og grónum bollum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Lýsing
Lágvaxin jurt (10–20 sm) með hjartalaga blöðum, gishærðum á efra borði og fjólubláum blómum.
BlaðJarðstöngull uppréttur, dökkur, með för eftir mörg blöð. Stór blaðhvirfing og stönglar með blöðum og blómum. Blöð og stönglar visna með haustinu. Blöð þunn, hjartalaga, álíka löng og breið með stutt, gisin hár á efra borði. Eyrblöðin smá og langspísslaga með þunn, oft nær þráðlaga tennur sem standa nær útrétt, visna snemma (Lid og Lid 2005).
BlómBlómin stór. Krónublöð bláfjólublá. Sporinn hvítur eða stundum dökkfjólublár, nokkuð uppsveigður og oftast þver í endann (Lid og Lid 2005).
AldinAldinið er þrístrent hýðisaldin eins og á hinum fjólunum og opnast með því að klofna í þrennt (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
GreiningHún líkist týsfjólu en þekkist á stuttum, hjartalaga laufblöðum. Eins er sporinn mjórri í endann og bláleitari á skógfjólu en týsfjólu.
Válistaflokkun
Skógfjóla er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978, um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda. Hún er þó ekki á válista.Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Hún vex einkum í grasbrekkum og grónum bollum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Skógfjóla (Viola riviniana)