![Mynd af Þyrnirós (Rosa pimpinellifolia) Mynd af Þyrnirós (Rosa pimpinellifolia)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/6f1362b6b39df4c35d1ef466a3be7469.jpg?itok=rehUqJpb)
Útbreiðsla
Sjaldgæf á Íslandi, hún hefur fundist á nokkrum stöðum frá Austfjörðum, suður um og norður til Vestfjarða (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Gras- og blómlendi, jafnvel í grýttum fjallshlíðum (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Lýsing
Fremur lágvaxinn rósarunni (30–70 sm) með þéttum þyrnum og hvítum rósum. Blómgast í júlí.
BlaðBlöðin fjöðruð, oftast með þrem til fjórum blaðpörum og endablaði. Smáblöðin sporbaugótt, reglulega tennt, 1–2 sm á lengd. Stöngullinn þétt settur afar misstórum þyrnum, frá 1 mm upp í 8 mm á lengd. Smáþyrnar þéttir, gisstæðari grófir þyrnar á milli (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru 3–5 sm í þvermál. Krónublöðin hvít, 1,5–2 sm löng. Bikarfliparnir mjóir, odddregnir, tenntir, 1–1,5 sm á lengd. Margir gulir fræflar. Nokkrar frævur í miðju blóminu, loðnar (Hörður Kristinsson 1998).
AldinAldinið er svokallað hjúpaldin, hnöttótt staup, blárautt að lit, 7–8 mm í þvermál, holt innan með smáum hnetum í botninum (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst á glitrós en þyrnirós þekkist á hvítum blómum, minni axlablöðum og þéttum, misstórum þyrnum.
Válistaflokkun
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | NE |
Forsendur flokkunar
Þyrnirós flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 7 km2.
Viðmið IUCN: D2
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Þyrnirós er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Þyrnirós er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Verndun
Þyrnirós er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Þyrnirós (Rosa pimpinellifolia) Útbreiðsla - Þyrnirós (Rosa pimpinellifolia)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/915e2e62e8147dd2d77c6c2cab513133.jpg?itok=wZJMIkfS)
Myndir
![Mynd af Þyrnirós (Rosa pimpinellifolia) Mynd af Þyrnirós (Rosa pimpinellifolia)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/8c4d3c6508fc7b36b470b024ec606e0a.jpg?itok=6NAZeQ-x)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Gras- og blómlendi, jafnvel í grýttum fjallshlíðum (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Þyrnirós (Rosa pimpinellifolia)