Útbreiðsla
Fremur sjaldgæf (Hörður Kristinsson 1998).Vistgerðir
Ræktarlegt mólendi, graslendi og skóglendi eða kjarr (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Fremur hávaxin jurt (30–50 sm) með vafþráðum og gulum, einsamhverfum blómum. Blómgast í júlí–ágúst.
BlaðStöngullinn hvassstrendur. Blöðin stakstæð, fjöðruð, aðeins með einu fullmynduðu blaðpari en vafþráðum í endann sem oft vefjast utan um nærliggjandi plöntur. Smáblöðin lensulaga, hvassydd. Tvö skakkörlaga og hvassydd axlablöð við blaðfótinn (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru um 1,5 sm á lengd, einsamhverf, stuttstilkuð, sex til tíu saman í einhliða klasa. Krónublöðin gul. Bikarinn um 1 sm á lengd, klofinn niður til miðs í fimm mjóa og odddregna flipa, taugarnar hærðar. Fræflar tíu, ein fræva (Hörður Kristinsson 1998).
AldinAldinið er belgur, myndaður af einu fræblaði (Lid og Lid 2005).
GreiningAuðþekkt frá öðrum íslenskum tegundum á gulum ertublómum og aðeins einu pari smáblaða.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Ræktarlegt mólendi, graslendi og skóglendi eða kjarr (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Fuglaertur (Lathyrus pratensis)