![Mynd af Bergsteinbrjótur (Saxifraga paniculata) Mynd af Bergsteinbrjótur (Saxifraga paniculata)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/137a4fb152f5a37f94916b7e16acaed3.jpg?itok=QsYGsNIQ)
Útbreiðsla
Bergsteinbrjótur er með sjaldgæfari steinbrjótum landsins. Hann er algengastur norðantil á Austfjörðum, einkum frá Borgarfirði suður í Breiðdalsvík en er þó mun sjaldgæfari en frænka hans, klettafrúin. Hann finnst einnig á nokkrum stöðum á Vesturlandi, einkum frá Leirársveit norður í Borgarfjörð. Örfáir staðir eru einnig þekktir um Snæfellsnes og Vestfirði og í Vatnsdal og Siglufirði á Norðurlandi (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Klettaskorur, gljúfurveggir og hamrabelti (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Fremur lágvaxin planta (10–18 sm) með aflöng blöð í stofnhvirfingu og hvíta blómklasa. Blöðin alsett hvítum kalktönnum. Blómgast í júlí.
BlaðStöngullinn kirtilhærður með stakstæðum, um 5 mm löngum blöðum. Stofnblöðin þétt saman í hvirfingu, tungulaga, 7–15 mm löng og um 5 mm breið. Blaðrendurnar þétt settar hvítum kalktönnum (Hörður Kristinsson 1998).
BlómNokkur blóm standa saman í stuttum klasa efst á stöngli, blómin hvít, fimmdeild, um 1 sm í þvermál. Krónublöðin snubbótt í endann, bikarinn stuttur. Fræflar tíu, ein klofin fræva (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist klettafrú en blómskipanir hans eru minna greindar og blöðin í stofnhvirfingunni eru minni, einkum mjórri.
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Bergsteinbrjótur (Saxifraga paniculata) Útbreiðsla - Bergsteinbrjótur (Saxifraga paniculata)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/cd78d56f9002a6484d7c1cb05ea9c948.jpg?itok=QvX1mXVa)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Klettaskorur, gljúfurveggir og hamrabelti (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Bergsteinbrjótur (Saxifraga paniculata)