Útbreiðsla
Sjaldgæf (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Meðalhá planta (10–50 sm) með gróftennt blöð og gul blóm í hálfsveip.
BlaðStofnblöðin eru nýrlaga og gróftennt en stundum djúpsepótt eða skipt með tenntum flipum. Efstu blöðin skipt í nokkra striklaga eða Y-laga flipa (Hörður Kristinsson 1998).
BlómGul, fimmdeild blómin í hálfsveip (Lid og Lid 2005).
GreiningLíkist brennisóley en þekkist á mjög fjölbreytilegri blaðlögun.
Válistaflokkun
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | NE |
Forsendur flokkunar
Sifjarsóley flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, þ.e. 16-20 km2 auk þess sem nýlega var afhjúpað að íslenska tegundin er einlend.
Viðmið IUCN: D2
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Sifjarsóley er á válista í hættuflokki NT (í nokkurri hættu).
Válisti 1996: Sifjarsóley er ekki á válista.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson júní 2018
Biota
- Tegund (Species)
- Sifjarsóley (Ranunculus auricomus)