![Mynd af Blæösp (Populus tremula) Mynd af Blæösp (Populus tremula)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/5c07857923f1bc3b2eea01386feba8f5.jpg?itok=QGjUM88w)
Útbreiðsla
Vex villt á örfáum stöðum á landinu, á Norður- og Austurlandi (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Almennt
Tegundin þolir illa mikla beit og hefur nær verið útrýmt á meðan allt landið var nýtt til stöðugrar beitar (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
Vistgerðir
Móar og kjarrlendi (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Lítið tré eða runni, allt að 6 m hátt. Laufblöðin eru tennt og svo gott sem kringlótt.
BlaðTrénaðir stönglar, oft skriðulir eða jarðlægir. Fjölgar sér með rótarskotum. Blöðin stilkuð. Blaðkan kringlótt eða egglaga, stundum aðeins odddregin í endann, tennt, oftast 2–6 sm í þvermál, fagurgræn ofan en grádöggvuð á neðra borði, nær hárlaus nema helst neðan til á blaðstrengjum. Stilkar og ungar greinar hærðar (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómstrar ekki hér á landi svo vitað sé (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist engri annarri íslenskri tegund.
Válistaflokkun
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | LC |
Forsendur flokkunar
Blæösp flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 10 km2.
Viðmið IUCN: D2
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Blæösp er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Blæösp er ekki á válista.
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Blæösp (Populus tremula) Útbreiðsla - Blæösp (Populus tremula)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/8ca25f939be2c376d5a6f35aa44e1d93.jpg?itok=hi5ySU4i)
Myndir
![Mynd af Blæösp (Populus tremula) Mynd af Blæösp (Populus tremula)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/74f97d8f25dba4cf9cefd98565db07b1.jpg?itok=Z_aokbg8)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Móar og kjarrlendi (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Blæösp (Populus tremula)