![Mynd af Klettaburkni (Asplenium viride) Mynd af Klettaburkni (Asplenium viride)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/43205df692fe2e1d6c09c7d73b90f9e7.jpg?itok=MZUvN4yb)
Útbreiðsla
Mjög sjaldgæfur, hefur fundist á fremur fáum stöðum á austanverðu landinu frá Höfuðreiðarmúla við Reykjaheiði í norðri til Fagurhólsmýrar í suðri. Til skamms tíma var aðeins vitað um klettaburknann á nokkrum stöðum suðaustanlands en síðan fannst hann á fáeinum stöðum norðanlands, sumir þessara staða fóru undir hraun í Leirhnjúksgosinu (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Klettaskorur (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Lágvaxinn burkni (8–12 sm) með fjöðruð blöð og bogtennt smáblöð.
BlaðBlöðkurnar einfjaðraðar, 4–10 sm á lengd og 7–12 mm á breidd. Hliðarsmáblöðin skakktígullaga, egglaga eða nær kringlótt. Blaðstilkarnir brúnir neðan til, grænir efst líkt og miðstrengur blaðsins (Hörður Kristinsson 1998).
BlómTveir til fimm smáir gróblettir neðan á hverju smáblaði. Til hliðar við yngstu gróblettina má greina himnukennda gróhulu sem hverfur við þroskun (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist svartburkna en klettaburkninn þekkist best frá honum á grænum miðstreng blaðsins, á svartburkna er hann svartur eða dökkbrúnn. Getur einnig minnt á liðfætlu en ólíkt henni er klettaburkninn hárlaus (Hörður Kristinsson 1998).
Válistaflokkun
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | NE |
Forsendur flokkunar
Klettaburkni flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem stofninn er talinn lítill og telji færri en 1000 fullþroska einstaklinga auk þess sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 10 km2.
Viðmið IUCN: D1, 2
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.D1. Number of mature individualsD2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Klettaburkni er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Klettaburkni er á válista í hættuflokki LR (í nokkurri hættu).
Verndun
Klettaburkni er friðaður samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Klettaburkni (Asplenium viride) Útbreiðsla - Klettaburkni (Asplenium viride)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/1222522c43200e4ae394642541c49b89.jpg?itok=v8fh28B1)
Myndir
![Mynd af Klettaburkni (Asplenium viride) Mynd af Klettaburkni (Asplenium viride)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/3aff62da92f80843844bccb0974e87b9.jpg?itok=lKEzCk5p)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Klettaskorur (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Klettaburkni (Asplenium viride)