Útbreiðsla
Afar sjaldgæfur á Íslandi, aðeins fundinn á einum stað. Hann vex í skoru í einum kletti á Norðurlandi og eru aðeins tvær plöntur í skorunni (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Þurrar klettaskorur.Lýsing
Lágvaxinn burkni (10–15 sm), blöðin gaffalskipt með striklaga flipum.
BlaðBlöð gaffalskipt með fáum, striklaga flipum. Fliparnir með nokkrum tönnum á endanum. Blaðstilkar grænir, blöð dökkgræn (Lid og Lid 2005).
BlómGróblettirnir renna saman og þekja allt neðra borðið, dökkbrúnir (Lid og Lid 2005).
GreiningHann er auðþekktur frá öllum öðrum burknum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
Válistaflokkun
CR (tegund í bráðri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
CR | NE |
Forsendur flokkunar
Skeggburkni hefur aðeins fundist á einum stað á norðanverðu landinu en þar fannst hann um 1960. Lengi uxu tvær plöntur í lítilli skoru í kletti en þegar burknans var vitjað árið 2014 fannst þriðja plantan nærri hinum tveimur.
Viðmið IUCN: D
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðsluD. Fjöldi fullþroska einstaklinga færri en 50Fjöldi fullþorska einstaklinga 3.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Skeggburkni er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).
Válisti 1996: Skeggburkni er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).
Verndun
Skeggburkni er friðaður samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Þurrar klettaskorur.Biota
- Tegund (Species)
- Skeggburkni (Asplenium septentrionale)