![Mynd af Dvergtungljurt (Botrychium simplex) Mynd af Dvergtungljurt (Botrychium simplex)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/bd6a95f3875f7f51638aaedc39a1f20f.jpg?itok=5xpyjePO)
Útbreiðsla
Þetta er sjaldgæf tegund sem stundum vex við jarðhita eins og í Jarðbaðshólum og Bjarnarflagi í Mývatnssveit en vex einnig í köldum, sendnum jarðvegi einkum við suðausturströnd landsins (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Vex stundum við jarðhita en einnig í köldum, sendnum jarðvegi (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Lýsing
Smávaxin jurt með einu, fjaðurskiptu blaði og klasa af gróhirslum.
BlaðGrólausi blaðhlutinn er oftast stilkstuttur og festur alveg niðri við jörð. Smáblöðin eru einföld, oft nokkuð hrokkin á röndunum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
BlómGróbæri blaðhlutinn á grönnum, allöngum stilk (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
AfbrigðiHér á landi hefur einnig nýlega fundist sjaldgæft afbrigði dvergtungljurtar, Botrychium simplex var. tenebrosum („renglutungljurt“). Á því er grólausi blaðhlutinn festur mjög ofarlega á stönglinum og oft ber hann einnig örfáar gróhirslur. Rannsóknir eiga eftir að skera úr um hvort þetta afbrigði sé í raun sjálfstæð tegund fremur en afbrigði dvergtungljurtar (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
Válistaflokkun
Dvergtungljurt er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978, um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda. Hún er þó ekki á válista.Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Dvergtungljurt (Botrychium simplex) Útbreiðsla - Dvergtungljurt (Botrychium simplex)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/4e31b3198868501df8ab5add04a8df6e.jpg?itok=Z-vfFhOa)
Myndir
![Mynd af Renglutungljurt (Botrychium simplex) Mynd af Renglutungljurt (Botrychium simplex)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/3c3c037fe7ce58ec7e76b41996626261.jpg?itok=2H9kB-tX)
![Mynd af Dvergtungljurt (Botrychium simplex) Mynd af Dvergtungljurt (Botrychium simplex)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/623740fe3eb4af5909e63bf502f550d6.jpg?itok=tDSXB_Ll)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Vex stundum við jarðhita en einnig í köldum, sendnum jarðvegi (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Renglutungljurt (Botrychium simplex)