![Mynd af Keilutungljurt (Botrychium minganense) Mynd af Keilutungljurt (Botrychium minganense)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/67f65225d252eb297ee189de4dd782f5.jpg?itok=gPtJwY41)
Útbreiðsla
Fannst fyrst á Íslandi árið 2001. Keilutungljurt er eftir því sem best er vitað í dag ein af fáum vestrænum tegundum á Íslandi, eins og gulstörin og eyrarrósin en er ekki þekkt frá öðrum löndum Evrópu. Sá möguleiki er þó enn fyrir hendi að mönnum hafi yfirsést þessi tegund þar eins og hér á landi (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Sendinn jarðvegur eða frjóar grasbrekkur.Lýsing
Lágvaxin jurt með einu, fjaðurskiptu blaði og klasa af gróhirslum.
BlaðÖrstuttur, uppréttur jarðstöngull með einu blaði sem greinist í tvennt ofan til, í gróbæran hluta með klasa af gróhirslum og fjaðraða blöðku með smáblöðum. Smáblöðin keilulaga. Blaðpörin öll í einum fleti (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningHún líkist nokkuð venjulegri tungljurt en smáblöðin eru mjórri og fremur keilulaga en tungllaga og skarast því ekki eins mikið og á venjulegri tungljurt. Blaðpörin eru öll í einum fleti en ekki eins og á tungljurt þar sem neðsta blaðparið rís fram og snúa þau því hvort á móti öðru (Hörður Kristinsson 1998).
Válistaflokkun
DD (vantar gögn)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
DD | NE |
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Keilutungljurt er á válista í hættuflokki DD (upplýsingar ófullnægjandi).
Válisti 1996: Keilutungljurt er ekki á válista.
Útbreiðslukort
![Útbreiðsla - Keilutungljurt (Botrychium minganense) Útbreiðsla - Keilutungljurt (Botrychium minganense)](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/a9250112738ae3a4625faaa804d5f731.jpg?itok=stgVUQUj)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Sendinn jarðvegur eða frjóar grasbrekkur.Biota
- Tegund (Species)
- Keilutungljurt (Botrychium minganense)