Útbreiðsla
Fágæt brúðutegund sem hefur einkum fundist á Suðvesturlandi og Vestfjörðum (Hörður Kristinsson 1998).Vistgerðir
Tjarnir og lygnir lækir.Lýsing
Fíngerð jurt sem vex ofast á kafi í grunnu vatni, blómstrar lítt áberandi blómum.
BlaðSmávaxin. Neðri blöðin striklaga með tvær, klólaga tennur í endann. Efri blöðin mjósporbaugótt með þremur taugum (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin græn, einkynja, blómhlífarlaus. Karlblóm hafa einn frjóhnapp, kvenblóm með eina frævu (Lid og Lid 2005).
AldinAldin þykkt og ljóst, á löngum stilk, nær hnöttótt og 1,1–1,2 mm í þvermál. Vængbrún 0,1 mm breið eða breiðari, úr stuttum, þykkum frumum (Lid og Lid 2005).
GreiningLíkist einna mest síkjabrúðu eða vorbrúðu nema blómin og aldinin eru greinilega leggjuð. Blöðin eru ekki eins löng og á síkjabrúðu en með svipaðar tennur á endanum (Hörður Kristinsson 1998).
Válistaflokkun
DD (vantar gögn)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
DD | LC |
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Lækjabrúða er á válista í hættuflokki DD (upplýsingar ófullnægjandi).
Válisti 1996: Lækjabrúða er á válista í hættuflokki DD (upplýsingar ófullnægjandi).
Verndun
Lækjabrúða er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Tjarnir og lygnir lækir.Biota
- Tegund (Species)
- Lækjabrúða (Callitriche brutia)