Heimsóknir
Á Náttúrufræðistofnun Íslands er tekið á móti nemendum eða nemendahópum sem kynna sér starfsemi stofnunarinnar eða einstök verkefni sem þar eru unnin. Fyrst og fremst er um að ræða nemendur í jarðfræði og líffræði á framhaldsskóla- og háskólastigi. Þar sem ekkert sýningarsafn er hjá stofnuninni henta heimsóknir nemendahópa á yngri skólastigum síður.
Tekið er á móti nemendum í starfskynningu.
Allar heimsóknir eiga sér stað á almennum vinnutíma.