Æðey
SF-V 28
Hnit – Coordinates: N66,10022, V22,65860
Sveitarfélag – Municipality: Ísafjarðarbær
IBA-viðmið – Category: A4iii, B1i, B1ii, B2
Stærð – Area: 757 ha (með verndarjaðri – with buffer zone)
Æðey er stærsta eyjan í Ísafjarðardjúpi, 121 ha og liggur skammt undan Snæfjallaströnd. Hún er láglend, hæst 34 m y.s., grösug og víða mýrlend. Mikið fuglalíf er í Æðey og ber eyjan nafn með rentu, því þar er mikið æðarvarp, líklega hið mesta á landinu, 4.000 hreiður. Teista uppfyllir alþjóðleg verndarviðmið (500 pör). Auk þess er talsvert lundavarp í eynni (7.874 pör).
Eyjan er á IBA-skrá.
Helstu varpfuglar í Æðey – Key bird species breeding in Æðey
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (pör) Number (pairs) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
|
---|---|---|---|---|---|---|---|
Æður1 | Somateria mollissima | Varp–Breeding | 4.000 | 2004 | 1,3 | B1i, B2 | |
Teista2 | Cepphus grylle | Varp–Breeding | 500 | 2000 | 4,0 | B1ii | |
Lundi3 | Fratercula arctica | Varp–Breeding | 7.874 | 2014 | 0,4 | ||
Alls–Total | 12.374 | A4iii | |||||
¹Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn – IINH, unpublished data. ²Ólafur Einarsson 2000. Iceland. Í Heath, M.F. og M.I. Evans, ritstj. Important Bird Areas in Europe: Priority sites for conservation. Volume I – Northern Europe, bls. 341–363. Cambridge: BirdLife International. ³Arnþór Garðarsson og Erpur Snær Hansen. Lundatal. Í undirbúningi (in preparation). |
English summary
Æðey island in Vestfirðir peninsula, NW-Iceland, is internationally important as a seabird colony (≥10,000 pairs), notably for Fratercula arctica (7,874 pairs), Somateria mollissima (4,000 pairs) and Cepphus grylle (500 pairs).