Andakíll
FG-V 9
Hnit – Coordinates: N64,55334, V21,79798
Sveitarfélag – Municipality: Borgarbyggð, Skorradalshreppur
IBA-viðmið – Category: B1i
Stærð svæðis – Area: um 3.086 ha
Andakíll er hér notað yfir austanverða ósa Hvítár og ósa Andakílsár í innanverðum Borgarfirði að sunnan; grunnsævi, leirur og flæðiengjar sitt hvorum megin við Kistuhöfða.
Þetta svæði er alþjóðlega mikilvægt fyrir blesgæsir og á fartíma hafa sést allt að 3.500 fuglar samtímis. Álftir í fjaðrafelli hafa einnig náð alþjóðlegum verndarviðmiðum á síðustu árum (530 fuglar). Meðal annarra tegunda sem nýta svæðið á fartíma eru urtönd (1.500 fuglar) og stelkur (allt að 2.500 fuglar). Loks dvelur þar stór hluti hins íslenska og ört vaxandi brandandarstofns.
Svæðið var friðlýst sem búsvæði blesgæsar, fyrst Hvanneyrarjörðin öll árið 2002 en árið 2011 var svæðið stækkað og fékk nafnið Andakíll (Björn Þorsteinsson 2010). Er friðlandið nú einnig eitt af sex Ramsar-svæðum á Íslandi. Það svæði sem hér er til umfjöllunar nær yfir allan ós Andakílsár.
Helstu fuglategundir í Andakíl– Key bird species in Andakíll*
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (fuglar) Number (birds) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Álft | Cygnus cygnus | Fellir–Moult | 530 | 2016 | 1,6 | B1i |
Blesgæs | Anser albifrons flavirostris | Far–Passage | 3.500 | 2012 | 15,9 | B1i |
*Byggt á Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn. – Unpublished data. |
English summary
Andakíll coastal and wetland area, W-Iceland, is an internationally important staging site for Anser albifrons flavirostris (3,500 birds) as well as a moulting site for Cygnus cygnus (530 birds).
Opna í kortasjá – Open in map viewer
Heimildir – References
Björn Þorsteinsson 2010. Fuglafriðland í Andakíl: nýtt Ramsarsvæði. Fuglar 7: 28–31.