Acta Naturalia Islandica

Í Acta Naturalia Islandica birtust greinar um íslenska náttúrufræði ritaðar á erlendum tungum, einkum ensku. Aðeins ein grein birtist í hverju hefti. Á þessum vettvangi gafst mönnum kostur á að koma á framfæri greinum sem vegna lengdar var erfitt að fá birtar í öðrum ritum. Höfundar eru jafnt íslenskir sem erlendir fræðimenn.

Útgáfan, sem hófst árið 1946, var ekki reglubundin og var ákveðið að hætta henni árið 1995.