5. október 2011. Smári Gunnarsson: Skjaldbakan

5. október 2011. Smári Gunnarsson: Skjaldbakan

Smári Gunnarsson leikari verður gestur á fyrsta Hrafnaþingi haustmisseris 2011, miðvikudaginn 5. október kl. 15:15. Að þessu sinni er ekki um hefðbundið fræðsluerindi að ræða heldur verður á gamansaman hátt rifjaður upp sá stóratburður þegar risaskjaldbaka kom að landi á Hólmavík árið 1963.

Smári flytur einleik sem ber heitið „Skjaldbakan“ sem er saminn af honum sjálfum í samstarfi við leikstjórann Árna Grétar Jóhannsson. Verkið er byggt á þeim stóratburði þegar risaskjaldbakan kom að landi á Hólmavík. Hún var 2 metrar á lengd og 375 kg og þótti mikið sæskrímsli en þetta var í fyrsta sinn sem vitað er um að slíkt dýr hafi komið að landi á Íslandi.

Verkið fjallar um ungan mann sem kynnist veiðimanninum sem fann skjaldbökuna og þótt þeir fari í sitt hvora áttina þá eru á milli þeirra órjúfanleg tengsl. Veiðimaðurinn tekur loforð af hinum unga manni að passa upp á bát fyrir sig þegar hann flytur frá þorpinu. Þegar báturinn dúkkar upp aftur mörgum árum seinna og minningar um veiðimanninn og skjaldbökuna sem hann dró að landi streyma fram þá koma fram leyndir draumar hins unga manns um veiðimennsku, sjómennsku og almenna karlmennsku. Allt kristallast þetta auðvitað í einu merkasta afreki veiðimannsins, skjaldbökuævintýrinu og ferðalagi hennar til Reykjavíkur.

Skjaldbakan hefur verið sýnd við frábærar undirtektir á Hólmavík og á einleikjahátíðinni Act Alone á Ísafirði.

Steingrímsfj.skjaldbakan sennilega leðurskjaldbaka (Morgunblaðið, 3. október 1963)