Risahvannir – umgangist með varúð


Bjarnarkló (Heracleum stevenii) í blóma í Hljómskálagarðinum 25. júní 2003. (Greining er óstaðfest.) Ljósm. Sigurður H. Magnússon.

Tröllahvönn og fleiri tegundir risahvanna hafa verið ræktaðar til skrauts í nokkrum mæli hér á landi. Á stöku stað hafa þær tekið að breiðast út síðustu ár með hlýnandi loftslagi og aukinni beitarfriðun lands. Í nágrannalöndunum hefur talsvert verið varað við innfluttum risahvönnum vegna húðbrunans sem þær geta orsakað og þess að þær mynda einsleitar breiður sem ryðja lágvaxnari gróðri úr vegi. Náttúrufræðistofnun hefur tekið undir þessi orð og birt upplýsingar um risahvannir á vef sínum.