Þetta var í fjórða skipti sem alþjóðlega ráðstefnan um melrakkann (International conference in Arctic Fox Biology) var haldin en hún er haldin á fjögurra ára fresti og nú í fyrsta sinn á Íslandi. Á ráðstefnunni voru vísindamenn frá Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Rússlandi, Bandaríkjunum, Kanada, Þýskalandi, Nýja-Sjálandi og Íslandi.
Haldnir voru 22 fyrirlestrar á fjórum sviðum, þ.e. samskipti við aðrar tegundir og menn; lífeðlisfræði og erfðafræði; verndun og stjórnun og stofnvistfræði. Einnig voru rannsóknaverkefni kynnt á veggspjaldasýningu.Hægt er að kynna sér erindin og veggspjöldin á sýningu Melrakkaseturs Íslands.
Melrakkasetur Íslands hafði umsjón með ráðstefnunni í samstarfi við Náttúrustofu Vestfjarða, Háskóla Íslands, Vesturferðir, Borea Adventures og Náttúrufræðistofnun Íslands.