Nú þegar Náttúrufræðistofnun Íslands er flutt í nýtt húsnæði í Urriðaholti í Garðabæ hefur verið gerð breyting á umsjón verkefnisins. Fuglamerkingar hafa verið færðar undir vistfræðideild stofnunarinnar og skipaður vinnuhópur sem mun annast daglega umsýslu, skráningu gagna í gagnagrunn, gerð samantekta og ársskýrslna auk stýringar úrvinnslu.
Í vinnuhópnum eru fuglafræðingar stofnunarinnar auk nokkurra starfsmanna upplýsingadeildar og skrifstofu. Fyrir hópnum fer Guðmundur A. Guðmundsson dýravistfræðingur. Dagleg umsýsla með fuglamerkingum, svo sem móttaka merkja, útsending svarskýrslna og innsláttur gagna, verður í höndum þeirra Helgu Valdemarsson og Svenju Auhage.
Tilkynningar um merki
Tilkynningar um fund á fuglamerki skal eftirleiðis senda í pósti á:
Náttúrufræðistofnun Íslands
Fuglamerki
Urriðaholtsstræti 6-8
Pósthólf 125
212 Garðabær
Einnig má tilkynna endurheimtur símleiðis í síma: 5 900 500, eða með tölvupósti: fuglamerki@ni.is.
Á næstunni verður sett upp eyðublað á vef stofnunarinnar sem hægt verður að fylla út beint og senda inn.
Fuglamerkingarmönnum hér á landi og merkingarstöðvum erlendis hefur verið tilkynnt um þessar breytingar - sjá tilkynningu (pdf).