Rjúpnatalningar 2009 - fréttatilkynning

Rjúpnatalningar Náttúrufræðistofnunar Íslands nú í vor benda til þess að uppsveifluskeið sem hófst á austanverðu landinu á síðasta ári nái nú til alls landsins. Eftir tveggja ára stofnvöxt eru rjúpur að verða algeng sjón í varplöndum um Norður- og Austurland. Meðalaukning 2008/2009 var um 25%. Venjulega hafa fyrri uppsveifluskeið varað í fjögur til fimm ár. Miðað við þær forsendur má búast við að stofninn nái hámarki á árunum 2011 og 2012. Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins mun liggja fyrir í ágúst í kjölfar mælinga á varpárangri rjúpna, afföllum 2008/2009 og veiði 2008.

Sjá fréttatilkynninguna í heild sinni frá Náttúrufræðistofnun Íslands, 9. júní 2009